Ferðamál – Sólon Íslandus (IZY)
Einangrað ferðamál með mynstri byggðu á listaverki eftir Sölva Helgason (1820–1895), einnig þekktur sem Sólon Íslandus. Hönnunin er sótt í verk úr safneign Listasafns Íslands.
Sólon Íslandus var sjálfmenntaður listamaður sem starfaði utan hefðbundins listheims á 19. öld. Verk hans á pappír teljast mikilvægur hluti af íslenskum menningararfi.
Ferðamálið er ætlað til daglegrar notkunar og heldur drykkjum heitum eða köldum.
Upplýsingar:
-
Myndefni: mynstur eftir Sölva Helgason (Sólon Íslandus)
-
Rúmmál: 350 ml
-
Heldur heitu í allt að 6 klst.
-
Heldur köldu í allt að 12 klst.
-
Vörumerki: IZY