Götuhorn – Samtal milli listar og bókmennta
Safnbók þar sem samtímabókmenntir og myndlist mætast. Bókin er þriðja útgáfan í ritröðinni Smárit Listasafns Íslands og byggir á samtali fimmtán rithöfunda og skálda við listaverk úr safni Listasafns Íslands.
Hver höfundur velur eitt listaverk og bregst við því með texta í prósa eða ljóði. Textarnir varpa nýju ljósi á verkin og kanna tengsl myndlistar og bókmennta.
Bókin er unnin í samstarfi Listasafns Íslands, Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO og Alþjóðlegrar bókmenntahátíðar í Reykjavík.
Upplýsingar:
-
Þriðja bók í ritröðinni Smárit Listasafns Íslands
-
Efni: bókmenntatextar og listaverk
-
Tungumál: íslenska og enska
-
Útgefandi: Listasafn Íslands