Ísabrot – Jöklar í íslenskri myndlist
Fræðslurit um jökla sem viðfangsefni í íslenskri myndlist. Bókin fjallar um hvernig listamenn hafa unnið með jökla í verkum sínum og setur þau í samhengi við náttúru, umhverfi og samtíma.
Ritið inniheldur dæmi um listaverk þar sem jöklar eru í forgrunni, ásamt skapandi verkefnum og vinnustofum sem þróaðar hafa verið af listamönnum. Efnið er ætlað til að hvetja til umræðu og virkrar þátttöku í skapandi ferli.
Bókin hentar kennurum, fjölskyldum og öðrum sem vilja nálgast íslenska myndlist og náttúru með fræðslu og skapandi vinnu.
Upplýsingar:
-
Efni: listaverk, fræðslutextar og skapandi verkefni
-
Tungumál: íslenska
-
Útgefandi: Listasafn Íslands