Ljósbrigði – Safn Ásgríms Jónssonar
Yfirlitsrit um líf og verk Ásgríms Jónssonar (1876–1958), eins af brautryðjendum íslenskrar myndlistar. Bókin fjallar um ævistarf hans og stöðu í mótun íslenskrar listasögu.
Ritið skiptist í þrjá hluta: kynningu á listamanninum, myndskreytt yfirlit yfir helstu verk hans og heildarskrá yfir safn Ásgríms Jónssonar. Fjallað er bæði um landslagsmálverk hans og verk sem tengjast íslenskum þjóðsögum.
Bókin inniheldur yfir 200 myndir af verkum Ásgríms Jónssonar og veitir heildaryfirsýn yfir safn hans.
Upplýsingar:
-
Efni: ævi og verk Ásgríms Jónssonar, safnskrá
-
Yfir 200 myndir
-
Tungumál: íslenska og enska
-
Útgefandi: Listasafn Íslands