Sýningarskrá – Woody Vasulka: The Brotherhood
Sýningarskrá sem kom út í tengslum við sýninguna Woody Vasulka, The Brotherhood: A Series of Six Interactive Constructions í NTT Intercommunication Center í Tókýó árið 1998.
Ritið fjallar um gagnvirkar innsetningar Woody Vasulka og inniheldur fræðilega texta eftir Takashi Kaneko, Hisanori Gogota, Aline Brandauer, Daniel Masler, David Sear Mather, Dennis L. Dollens, Erkki Huhtamo, Roy Durfee, Ronald Christ, Cynthia Laureen Vogt og Russ Gritzo, auk texta eftir listamanninn sjálfan.