Listasafni Íslands er það sönn ánægja að kynna útgáfu glæsilegrar og ríkulega myndlýstrar bókar í tilefni sýninganna Echolalia eftir Björk og Ummyndlingar eftir James Merry, sem opnaðar verða í safninu 31. maí næstkomandi og standa til 4. október 2026.
Í viðtali sem rithöfundurinn og skáldið Oddný Eir tekur við listamennina er sjónum beint að skapandi samstarfi þeirra og hugmyndavinnunni sem liggur að baki þeim heimum sem móta nýjustu plötur Bjarkar.
Í grein eftir myndlistarýninn Hólmar Hólm er þróun listræns handverks og hönnunarverka James Merry rakin síðastliðinn áratug, með áherslu á uppruna og innblástur þeirra merkingarvídda sem birtast í grímum hans, líkamsskrauti og helgisiðamunum.
Útdráttur úr samtali Bjarkar og skáldsins Ocean Vuong veitir innsýn í þátt listsköpunar í tjáningu djúpstæðrar reynslu af missi og sorg. Þá varpar samræða Bjarkar og Hans Urich Obrists sýningarstjóra og listfræðings ljósi á hið víðfeðma svið miðla sem Björk hefur kannað á ferli sínum.
Útgefandi: Listasafn Íslands
Tungumál: Íslenska og enska
Höfundar: Ingibjörg Jóhannsdóttir, Pari Stave, Hólmar Hólm og Oddný Eir.
Bókin inniheldur einnig viðtöl við Björk og Hans Ulrich Obrist annars vegar og Ocean Vuong hins vegar í íslenskri þýðingu Ragnars Helga Ólafssonar;
Bls.: 167
Útgáfudagur: 31. maí 2026
Verð: 11.900 kr.

