{"product_id":"bjork-james-merry","title":"Björk I James Merry","description":"\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan style=\"mso-fareast-font-family: 'Times New Roman'; color: black;\"\u003eListasafni Íslands er það sönn ánægja að kynna útgáfu glæsilegrar og ríkulega myndlýstrar bókar í tilefni sýninganna Echolalia eftir Björk og Ummyndlingar eftir James Merry, sem opnaðar verða í safninu 31. maí næstkomandi og standa til 4. október 2026.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan style=\"mso-fareast-font-family: 'Times New Roman'; color: black;\"\u003eÍ viðtali sem rithöfundurinn og skáldið Oddný Eir tekur við listamennina er sjónum beint að skapandi samstarfi þeirra og hugmyndavinnunni sem liggur að baki þeim heimum sem móta nýjustu plötur Bjarkar.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan style=\"mso-fareast-font-family: 'Times New Roman'; color: black;\"\u003eÍ grein eftir myndlistarýninn Hólmar Hólm er þróun listræns handverks og hönnunarverka James Merry rakin síðastliðinn áratug, með áherslu á uppruna og innblástur þeirra merkingarvídda sem birtast í grímum hans, líkamsskrauti og helgisiðamunum.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan style=\"mso-fareast-font-family: 'Times New Roman'; color: black;\"\u003eÚtdráttur úr samtali Bjarkar og skáldsins Ocean Vuong veitir innsýn í þátt listsköpunar í tjáningu djúpstæðrar reynslu af missi og sorg. Þá varpar samræða Bjarkar og Hans Urich Obrists sýningarstjóra og listfræðings ljósi á hið víðfeðma svið miðla sem Björk hefur kannað á ferli sínum.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÚtgefandi: Listasafn Íslands\u003cbr\u003eTungumál: Íslenska og enska\u003cbr\u003eHöfundar: Ingibjörg Jóhannsdóttir, Pari Stave, Hólmar Hólm og Oddný Eir.\u0026nbsp;\u003cbr\u003eBókin inniheldur einnig viðtöl við Björk og Hans Ulrich Obrist annars vegar og Ocean Vuong hins vegar í íslenskri þýðingu Ragnars Helga Ólafssonar;\u0026nbsp;\u003cbr\u003eBls.: 167\u003cbr\u003eÚtgáfudagur: 31. maí 2026\u003cbr\u003eVerð: 11.900 kr.\u003c\/p\u003e","brand":"Listasafn Íslands","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45862895878330,"sku":null,"price":11900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0505\/1970\/3738\/files\/cover4-5.jpg?v=1779274365","url":"https:\/\/listasafn-islands.myshopify.com\/is\/products\/bjork-james-merry","provider":"Listasafn Íslands","version":"1.0","type":"link"}