Sjónarafl þjálfun í myndlæsi

Sjónarafl þjálfun í myndlæsi

Seljandi
Listasafn Íslands
Verð
4.600 kr.
Verð
4.600 kr.
Verð
Uppselt
Stykkjaverð
á 
Verð með virðisauka

Nýtt námsefni sem eflir hugtakaskilning og þjálfar myndlæsi

Listasafn Íslands gefur út kennsluefnið Sjónarafl – þjálfun í myndlæsi.
Efnið hefur verið aðgengilegt á rafrænu formi síðastliðið ár og verið í notkun í safnfræðslu og meðal kennara í skólum landsins við góðar undirtektir. Sjónarafl er byggt á þróunarverkefni sem fræðsludeild Listasafns Íslands hefur unnið að síðastliðin fjögur ár. Sjónarafl  miðar með markvissum hætti að því að tengja kennslu í myndlæsi og listasögu við skólakerfið og auka þekkingu nemenda á menningarsögu og menningararfi þjóðarinnar. Þjálfun í myndlæsi eykur einnig hæfni í tjáningu, virkri hlustun, hugtakaskilningi og gagnrýnni hugsun.

Höfundar:  Ragnheiður Vignisdóttir, Marta María Jónsdóttir og Hólmar Hólm