Rauði hatturinn og krummi

Rauði hatturinn og krummi

Seljandi
Listasafn Íslands
Verð
3.450 kr.
Verð
3.450 kr.
Verð
Uppselt
Stykkjaverð
á 
Verð með virðisauka

Rauði hatturinn og Krummi er skemmtileg barnabók á fimm tungumálum. Bókin var skrifuð og myndskreytt af Ásgerði Búadóttur myndlistarmanni og var fyrst gefin út af Helgafelli árið 1961.
Listasafn Íslands gefur bókina út öðru sinni til að heiðra minningu Ásgerðar Búadóttur.
Klippimyndirnar í bókinni eru einfaldar að formi, lifandi og fallegar. Þær eru í fimm litum, rauðum, grænum, gulum, svörtum og bláum. Rauði hatturinn og svarti krummi gefa þeim glaðlegan svip, en bláa peysan og grænu buxurnar hans Tuma bregða yfir þær fáguðum fínleika, sem stundum minnir á hin fögru veggteppi Ásgerðar.
Textinn er prentaður á fimm tungumálum, íslensku, ensku, þýsku, dönsku og frönsku.
Hvert tungumál hefur sinn lit og tekst Ásgerði þannig að skapa myndræna heild.
Bókin er sniðin að yngstu lesendunum, bæði innlendum sem og erlendum.

 

Rauði hatturinn og krummi / The Red Hat and the Raven

Höfundur / Author.  Ásgerður Búadóttir
Tungumál / Languages: Íslenska, enska, franska, þýska, danska / Icelandic, english, danish, german, french
Umfang / Number of pages: 27
1. útgáfa / 1st edition, Helgafell, 1961

2. útgáfa / 2nd edition, Listasafn Íslands / National Gallery of Iceland, 2019

2. Rit nr. 58 / Publication No. 58

ISBN 978-9979-864-61-5